top of page

Afhverju taubleiur?

Taubleiur í dag eru allt annað og meira en þær voru fyrir þrjátíu árum síðan. Þau sem ekki þekkja til taubleia, sjá fyrir sér stóra bómullarklúta sem eru brotnir saman utan um barnið, festir með öryggisnælum og síðan plastdúkur bundinn yfir allt saman. Þetta er ekki raunin í dag. Nútíma taubleiur eru mun auðveldari og þægilegri í notkun og ekki skemmir hvað þær eru litríkar og fallegar.

 

Ástæðurnar fyrir að nota taubleiur frekar en hefðbundnar einnota bleiur eru nokkrar og það er mismunandi hvað verður til þess að foreldrar ákveða að hella sér útí tauið. Hérna verður farið yfir nokkur atriði varðandi ástæður fyrir því að nota taubleiur frekar en einnota bleiur.

 

Einnig verða taldir upp nokkrir punktar varðandi það hvað taubleiunotendur telja vera kostir og gallar varðandi taubleiunotkun. 

 

 

 

bottom of page